Fréttastofa RÚV
Ástand Mette-Marit krónprinsessu í Noregi er alvarlegt að sögn norsku konungshjónanna, Haraldar og Sonju. Þau tjáðu sig í dag þegar þau heimsóttu bæinn Beiarn í Norður-Noregi. Mette-Marit er með ólæknandi lungnasjúkdóm og þarf á lungnaígræðslu að halda. Hún er nú á biðlista eftir nýju lunga. Konungshjónin byrjuðu á að þakka fyrir mikinn stuðning frá almenningi vegna heilsu Mette-Marit. Hann sást meðal annars í því að skráðum líffæragjöfum fjölgaði til muna í síðustu viku. Þá fengu þau líka góðar kveðjur frá íbúum Beiarn. Ástand Mette-Marit krónprinsessu Noregs er alvarlegt, segja norsku konungshjónin. Ingrid dóttir krónprinsessunnar er komin heim frá Ástralíu vegna veikinda móður sinnar. Þegar konungshjónin voru spurð hvernig þeim liði eftir allt sem á undan er gengið sögðust þau hafa það fínt og taka einn dag í einu. En um krónprinsessuna sagði Haraldur: „Hún hefur það ekki eins gott.“ Sonja tók undir það og sagði: „Ástandið er alvarlegt.“ Ingrid krónprinsessa, sem hefur verið í námi í Ástralíu, er komin heim vegna veikinda móður sinnar. Konungshjónin glöddust yfir því en segja það þó ekki vera til frambúðar. Ekki sé ætlunin að hún taki við skyldum vegna veikindanna – þau vilji að hún klári námið áður. Marius Borg Høiby, elsti sonur Mette-Marit, sem nú bíður dóms vegna ákæru fyrir margvísleg brot, hefur sótt um að vera leystur úr varðhaldi vegna þessara veikinda. Dómstóll samþykkti það í gær en saksóknari áfrýjaði þeim úrskurði til æðra dómstóls og því er Marius enn í haldi.
Go to News Site