Vísir
Óalandi og óferjandi var stundum sagt á bernskudögum mínum um þá sem töldust vart húsum hæfir vegna óþekktar. Þá var óþekkt oft talin nægileg skýring á því að sum börn höfðu ekki hemil á hegðun sinni. Í dag eru hegðunarerfiðleikar barna oftar skýrðir með ýmsum greiningum, allt frá ADHD til lestrarörðugleika og annarra þroska- eða námsfrávika. Ég ætla ekki að gera lítið úr mikilvægi greininga en ef litið er yfir sviðið og spurt hvort þær hafi leyst vandann er ólíklegt að margir séu þeirri fullyrðingu sammála.
Go to News Site