Fréttastofa RÚV
Hamas-samtökin á Gaza og aðrar palestínskar hreyfingar samþykktu í dag að afhenda hluta vopnabúra sinna til fyrirhugaðrar heimastjórnar en útiloka alfarið að afvopnast að fullu. AFP-fréttaveitan greinir frá. Nær útilokað er að Ísraelsstjórn samþykki slíkt fyrirkomulag því hún hefur krafist þess að Hamas verði afvopnuð að fullu. Heimildarmenn AFP herma hins vegar að samningamönnum frá Egyptalandi og Katar lítist vel á þessa nálgun. Forsvarsmenn palestínsku hreyfinganna funduðu í Kaíró í Egyptalandi í dag með það að markmiðið að blása lífi í viðræður um framtíð Gaza-strandarinnar. Hamas og hliðholl samtök voru á fundinum en ekki Fatah-hreyfingin sem er í forystu Palestínustjórnar. Stríð Ísraelshers og Hamas hefur staðið frá október 2023 og þrátt fyrir að vopnahlé sé í gildi ber enn á árásum á Gaza. Ásakanir ganga á víxl um brot á skilmálum vopnahlésins og að standa í vegi fyrir framvindu friðarviðræðna.
Go to News Site