Fréttastofa RÚV
Þingflokksformenn hafa síðustu daga reynt að komast að samkomulagi um þinglok. Á morgun eru eldhúsdagsumræður og markmiðið er að síðasti starfsdagur þingsins verði á föstudag. Enn á eftir að afgreiða nokkur mál og ræða fjármálaáætlun í síðari umferð. Því er ekki útilokað að hægt verið að ljúka störfum á áætlun en líklega þarf örfáa daga til viðbótar. Fæstir eru spenntir fyrir því að endurtaka leikinn frá því í fyrra, þegar samið var um þinglok um miðjan júlí, en óvíst er hvort þinginu takist að hnýta alla lausa enda því nokkur stór mál eru óafgreidd. Enginn grundvallarágreiningur virðist vera um þau mál sem bíða afgreiðslu en stjórnarandstæðingar vilja til að mynda ná fram breytingum varðandi frumvörp um lagareldi og innviðafélag. Brottfararstöð, innviðafélag og fjármálaáætlun Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottvísunarstöð var samþykkt á Alþingi í dag . Þar á að hýsa útlendinga sem vísa á úr landi og er gert ráð fyrir að stöðin verði opnuð í byrjun desember. Breytingatillögur um vistarverur barnafjölskyldna voru samþykktar. Innviðafélagið og fjármálaáætlun eru einnig á dagskrá þingsins í dag, auk samgönguáætlunar, frumvarps dómsmálaráðherra um brottfararstöð og frumvarps um verndarsamkomulag Evrópusambandsins. Stjórnarandstæðingar vilja sjá enn frekari lækkun á framleiðslugjaldi í lagareldisfrumvarpinu. Þar er gert ráð fyrir að gjaldið fari úr 45 krónum á hvert kíló í 25 en stjórnarandstæðingar vilja að það verði lækkað í 15 krónur. Almannavarnir bíða fram á haust Önnur stór og flókin mál þurfa mögulega að bíða fram á haust og er til að mynda óvíst að hægt verði að klára afgreiðslu búvörulaga fyrir sumarið. Þau eru til umfjöllunar í atvinnuveganefnd. Þá hefur dómsmálaráðuneytið sagt fyrirséð að ekki takist að ljúka afgreiðslu nýrra almannavarnalaga á yfirstandandi þingi og verður það frumvarp því lagt aftur fram í haust. Fleiri mál eru farin í gegn á þessum tímapunkti en oft áður. 78 frumvörp hafa þegar verið samþykkt. Þar má til að mynda nefna frumvörp Ingu Sæland um hækkun frítekjumarks ellilífeyris, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og gæludýrahald í fjölbýlishúsum, frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar um snjalltæki í grunnskólum, frumvarp Daða Más Kristinssonar um kílómetragjald og frumvörp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur um brottvísun erlendra fanga og nálgunarbann og rafrænt eftirlit. Fjármálaráðherra lagði fram lang flest stjórnarfrumvörp á yfirstandandi þingi, eða 24 og næst á eftir var dómsmálaráðherra með 16. Forsætisráðherra lagði aðeins fram þrjú frumvörp, utanríkisráðherra fjögur og mennta- og barnamálaráðherra jafn mörg. 47 frumvörp eru komin í nefnd og 42 bíða fyrstu umræðu. Meðal þeirra eru hins vegar ýmis mál sem þegar liggur fyrir að leggja þarf aftur fram í haust, líkt og fyrrnefnt almannavarnafrumvarp. Þrettán frumvörp bíða annarrar umræðu og sjö þeirrar þriðju.
Go to News Site