Collector
Giriş Yap
Skrollið farið að trufla á fæðingarstofunni | Collector
Skrollið farið að trufla á fæðingarstofunni

Skrollið farið að trufla á fæðingarstofunni

Við erum mörg háð símanum okkar og grípum í hann tugum eða jafnvel hundrað sinnum á dag. Nú truflar tæknin okkur á mikilvægustu stundum lífsins, meðal annars í fæðingum. Oddný Silja er ljósmóðir á Björkinni og heldur auk þess fæðingarnámskeið. Hluti af námskeiðinu í dag fer í að biðja foreldra að leggja frá sér símann. „Við getum ekki verið algjörlega viðstödd og með þessa nærveru ef við erum að svara einhverjum í símanum og skoða eitthvað á Facebook. Þetta er truflandi. Makar og stuðningsaðilar í fæðingu eru að taka upp tækin til að gera eitthvað sem viðkemur ekkert stundinni,“ sagði Oddný í Kastljósi. Hún segir að þetta komi ekki frá slæmum stað. „Við erum bara svo háð símanum að við erum búin að sækja símann okkar áður en við hugsum: „Já, ég á von á fyrsta barninu mínu.““

Go to News Site