Collector
Giriş Yap
Samkomulag til staðar í aðildarviðræðunum við ESB 2010 | Collector
Samkomulag til staðar í aðildarviðræðunum við ESB 2010

Samkomulag til staðar í aðildarviðræðunum við ESB 2010

Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir í viðtali við RÚV, að í aðildarviðræðunum sem hófust 2010 hafi verið gert samkomulag um að íslensk stjórnvöld þurfi ekki að ráðast í kerfisbreytingar fyrr en eftir að þjóðaratkvæðagreiðsla hefði farið fram um aðild. Deilt hefur verið um þetta samkomulag að undanförnu í umræðum um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í ágúst og rætt um þetta í Silfrinu í gær, meðal annars við Stefán Hauk Jóhannesson, sendiherra í Brussel og fyrrum aðalsamningamann Íslands gagnvart Evrópusambandinu. „Íslendingar fara að miklu leyti eftir Evrópulöggjöfinni og aðlögunin sem þyrfti að gera, umgjörðin um samningagerðina, yrði sú sama og lá til grundvallar árið 2010,“ sagði Kos í viðtali við RÚV í Brussel í dag. Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir að í aðildarviðræðum Íslands við ESB 2010 hafi verið gert samkomulag um að ekki þyrfti að innleiða stjórnkerfisbreytingar fyrr en eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild. „Hún veitir nú þegar þann sveigjanleika til að hrinda í framkvæmd ákveðnum stjórnkerfisbreytingum (structural changes) eftir endanlegt þjóðaratkvæði um aðild. Það er íslensku þjóðarinnar og yfirvalda hennar að segja okkur hvernig þau vilja nálgast þetta og ESB hyggst ekki á nokkurn hátt taka fram fyrir sjálfræði Íslendinga. En fyrst verða Íslendingar auðvitað að ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst, hvort þeir vilja halda áfram með aðildarviðræður. Ef það verður niðurstaðan er kominn tími til að tala um þessi tæknilegu atriði,“ segir Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins.

Go to News Site