Fréttastofa RÚV
Töluverð aukning hefur orðið á þeim sem sækja um að fara í hjúkrunarfræðinám, sérstaklega á Akureyri. Illa gengur þó að bregðast við skorti á hjúkrunarfræðingum á landsvísu og spila þar samkeppnispróf hjúkrunarfræðinámsins stóran þátt. Það eru 329 einstaklingar sem vilja hefja nám við hjúkrunarfræði á Akureyri í haust. Þá eru rúmlega 200 sem vilja fara sömu leið í Háskóla Íslands. Mikil ásókn er í námið sem er gleðilegt að mati Helgu Bragadóttur, deildarforseta hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands. „Það virðist vera eitthvert ris núna, kannski hefur bara umfjöllun og heimsástandið áhrif. Það er kannski bara þannig,“ segir Helga. Áslaug Ásgeirsdóttir rektor HA tekur í sama streng og gleðst yfir fjölgun umsókna þó að aðeins fjórðungur af þeim komist í gegnum samkeppnispróf: „Hjúkrunarfræðinemar sem byrja í grunnámi í haust fara í klásuspróf í desember þar sem 75 komast áfram. Við höfum lengi viljað hækka það í 100 en okkur stendur fyrir þrifum að við erum ekki með nógu stóra og aðgengilega hermiaðstöðu til þess að kenna nógu mörgum nemendum.“ Færri komast áfram en vilja Aðeins brot af þessum rúmlega 500 nemendum sem sóttu um getur haldið áfram námi eftir fyrstu önnina, út af samkeppnisprófum eða klásus. Í HA komast 75 nemendur í gegnum klásus og 150 í HÍ. Skortur er á hjúkrunarfræðingum á landsvísu. „Það þarf til dæmis að fjölga kennaramenntuðum hjúkrunarfræðingum eða hjúkrunarfræðingum með framhaldsmenntun sem geta tekið að sér kennslu,“ segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Viðbragða sé þörf. „Sannarlega þarf að bregðast við á ýmsan hátt við vaxandi hjúkrunarþörf. Ekki bara á Íslandi heldur heiminum öllum.“ Þrátt fyrir það hefur þeim sem komast í gegnum samkeppnisprófin, eða klásus, fjölgað um helming á síðustu 20 árum með samstilltu átaki stjórnvalda og háskólanna.
Go to News Site