Fréttastofa RÚV
Eftir frábæra spilamennsku í Ohio á lokaúrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið, var Gunnlaugur Árni Sveinsson, tvítugur kylfingur úr GKG, einn fjögurra sem voru jafnir í öðru sæti á níu höggum undir pari. Við tók bráðabani, þar sem hann vann sér inn þátttökuréttinn. Mótið er eitt af risamótunum fjórum í golfi, og hefst eftir níu daga. Hann segir það hafa verið ótrúlegt að finna fyrir stuðningnum og öllum hamingjuóskunum frá því að hann tryggði sér þátttökuréttinn. Markmiðið að komast á mótið í ár Gunnlaugur segir það hafa verið markmiðið að komast á mótið í ár, enda hafi hann verið nálægt því í fyrra. „Þá horfði ég bara á þetta með það í huga að ég get þetta. Ef ég á bara minn dag og spila eftir því þá getur þetta gerst. Þannig þetta kom mér ekki beint á óvart en eftir á er þetta mjög sætt,“ segir hann. Gunnlaugur segir að gærdagurinn hafi þó verið dálítið taugatrekkjandi. Þegar hann var kominn í bráðabanann hafi hann hins vegar áttað sig á því að hann hefði verið sáttur með bara það, nokkrum dögum fyrr. „Ef þú setur þetta í samhengi við það þá er í raun engu að tapa og bara að vinna. Það létti mikið á mér og ég reyndi bara að brosa út í eitt, horfa í kringum mig og njóta augnabliksins sama hvernig það myndi fara.“ „En þetta var alltaf að fara vera mjög lærdómsrík reynsla sama hvort það myndi fara vel eða illa,“ segir Gunnlaugur. „Hrikalega mikið stolt sem fylgir því að vera fyrsti Íslendingurinn til að fara á þetta mót“ Gunnlaugur Árni verður aðeins annar íslenski karlinn til að keppa á risamóti í golfi, en Haraldur Franklín Magnús komst inn á Opna breska meistaramótið árið 2018. Þá hafa tvær íslenskar konur, þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir komist inn á risamót kvenna í golfi. „Það er bara hrikalega mikið stolt sem fylgir því að vera fyrsti Íslendingurinn til að fara á þetta mót og fylgja í fótspor þeirra Íslendinga sem hafa komist á risamót áður,“ segir Gunnlaugur. „Stolt er aðal tilfinningin sem ég finn og er bara hrikalega spenntur að spila fyrir Íslands hönd. Ég mun bara reyna að gera þjóðina stolta og mig sjálfan. Þannig ég er bara mjög spenntur fyrir þessu.“ „Þegar ég mæti í mótið er þetta bara eins og hvert annað golfmót“ Afrekið er talsvert fyrir tvítugan kylfing. „Ég hef bara reynt að leggja mig 150% fram í öllu sem kemur að þessu og mig langar að gera rosalega stóra hluti. Það skili mestu að undirbúa sig vel, vera vinnusamur og æfa mikið. „Þá koma styrkleikar innan leiksins sjálfkrafa,“ segir Gunnlaugur. Nú taki við að græja og gera ýmislegt, enda stutt í að mótið hefjist. „En svo þegar ég mæti í mótið þá er þetta bara eins og hvert annað golfmót,“ segir hann. „Þó þetta sé lang stærsta mót sem ég spilað á, þá þarf ég bara að undirbúa mig til að spila mitt besta golf.“ Hvort sem það þýði að ná í gegnum niðurskurð eða jafnvel að gera stærri hluti. „Ég ætla bara að reyna að undirbúa mig eins og ég get og sjá hverju það skilar,“ segir Gunnlaugur. Hinn tvítugi Gunnlaugur Árni Sveinsson tryggði sér í gærkvöld þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi, fyrstur íslenskra karla.
Go to News Site