Collector
Giriş Yap
No Borders Iceland hvetja almenning til að hafna brottfararstöð | Collector
No Borders Iceland hvetja almenning til að hafna brottfararstöð

No Borders Iceland hvetja almenning til að hafna brottfararstöð

Samtökin No Borders Iceland fordæma frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð sem samþykkt var á Alþingi í dag „með djúpri fyrirlitningu“. Þetta segir í Facebook-færslu sem samtökin birtu fyrir skömmu. Í færslunni hvetja samtökin almenning til að „hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd.“ Þá segja samtökin brottfararstöðina vera birtingarmynd siðferðislegs gjaldþrots stjórnvalda sem hafi innleitt lög sem stuðli að „frelsissviptingu saklausra einstaklinga, þar á meðal ósakhæfra barna.“ No Borders eru alþjóðleg samtök sem berjast gegn brottvísunum flóttamanna.

Go to News Site