Fréttastofa RÚV
Bandaríkjaher gerði í kvöld árásir á Íran í kjölfar þess að bandarísk herþyrla var skotin niður yfir Hormússundi í gær. Árásirnar hófust um klukkan 22 að íslenskum tíma. Herinn segir þær vera í sjálfsvarnarskyni og í réttu hlutfalli við árás Írana. Bandaríkjaher segir Írani ábyrga fyrir þyrluárásinni. Enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð. Tveir voru í þyrlunni en hvorugan sakaði. „Þrátt fyrir það verða Bandaríkin að svara fyrir árásina,“ skrifað Donald Trump Bandaríkjaforseti á samfélagsmiðil sinn Truth Social. Þá sagði hann í samtali við fréttastofu ABC að hann vildi mjög öflugt svar við árás Írana. CBS-fréttastofan hefur eftir bandarískum embættismanni að ekki sé ljóst hvort þyrlan hafi vísvitandi verið skotin niður. Samkvæmt írönskum ríkismiðlum hafa árásir verið gerðar á Sirik og Bandar Abbas á strönd Hormússunds og eyjuna Queshm á miðju sundinu. Árásirnar beinast að loftvarnarinnviðum og radarkerfum, að sögn bandarísku fréttasíðunnar Axios.
Go to News Site