Collector
  • X (Twitter)
Giriş Yap
Sló heimsmetið í undanrásum á háskólamóti | Collector
Sló heimsmetið í undanrásum á háskólamóti

Sló heimsmetið í undanrásum á háskólamóti

Ja'Kobe Tharp átti aldeilis góðan dag á úrslitamóti bandarísku háskólakeppninnar í frjálsíþróttum í nótt. Tharp, sem keppir fyrir Auburn-háskóla í Alabama, sló 14 ára gamalt heimsmet í 110 metra grindahlaupi í undanrásum. Tharp hljóp á 12,75 sekúndum og bætti heimsmetið Aries Merritt um 5 hundruðustu úr sekúndu. Þetta er í fyrsta sinn í 50 ár sem heimsmet er slegið á úrslitamóti háskólanna vestanhafs. Áður átti Tharp best 13,01 sekúndu og metið kom honum því jafnmikið á óvart og öðrum. „Þetta var ekki á bingóspjaldinu mínu fyrir mótið, bara alls ekki. Ég er orðlaus. Grínlaust!“ sagði hann eftir hlaupið. Úrslitin eru á svo á morgun. Ja'Kobe TharpImago / IMAGO / Newscom World

Siteye Git