DV
Tom Heaton hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Manchester United. Markvörðurinn, sem er orðinn fertugur, hefur aðeins spilað þrjá leiki síðan hann sneri aftur til félagsins árið 2021 en er talinn afar mikilvægur í klefanum. Heaton er meðal leiðtoga leikmannahópsins og hefur meðal annars hjálpað unga markverðinum Senne Lammens að aðlagast hjá félaginu. Lesa meira
Go to News Site