Vísir
„Hættu að skipta þér af.“ Það eru líklega fáar setningar sem hljóma verr við fyrstu hlustun. Þær virðast stangast á við margt af því sem okkur hefur verið kennt um góðmennsku, ábyrgð og umhyggju. Við viljum trúa því að gott fólk skipti sér af. Að gott fólk gangi ekki fram hjá vandamálum. Að það láti sig aðra varða, rétti fram hjálparhönd þegar á þarf að halda og geri það sem það getur til að bæta heiminn í kringum sig. Þess vegna fannst mér þessi orð lengi vel hljóma eins og uppskrift að sinnuleysi. Eins og verið væri að hvetja fólk til að loka augunum fyrir öðrum og einbeita sér eingöngu að sjálfu sér.
Go to News Site