Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hinum 12 ára Adomas Kulikauskas en síðast er vitað um ferðir hans í Árbænum. Adomas, sem er grannvaxinn, var klæddur í svartan jakka og hvíta og græna skó.