Fréttastofa RÚV
D-listi sjálfstæðismanna og óháðra í Hörgársveit hefur samþykkt fullskipaðan lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2026. Í fréttatilkynningu frá framboðinu kemur fram að framboðið er nýtt í Hörgársveit og markar tímamót, en þetta er fyrsta nýja framboðið í sveitafélaginu síðustu átta ár. Markmiðið með framboðinu er að auka gagnsæi, efla lýðræðislega þátttöku og bjóða fram öflugan og fjölbreyttan hóp fólks með ólíkan bakgrunn, reynslu og þekkingu.
Go to News Site