Vísir
Mikill niðurskurður á makrílkvóta Íra hefur verið uppspretta mikillar Þórðargleði hjá Nei-sinnum á Íslandi að undanförnu. Þar með telja þeir sig fá enn eina staðfestingu á einbreyttum brotavilja Brusselvaldsins gagnvart smáþjóðum. Veikleiki þessarar röksemdafærslu liggur hins vegar í að það skiptir máli hvernig samninga viðkomandi þjóðir gera við inngöngu í Evrópusambandið. Írar skilgreindu ekki sjávarútveg sem þjóðhagslega mikilvæga atvinnugrein við inngöngu í ESB árið 1973 en treystu á hin svokölluðu Haag-viðmið aðildarríkjanna. Þau eru hins vegar ekki hluti af frumrétti Evrópusambandsins og hægt að breyta með meirihluta atkvæða.
Go to News Site