COLLECTOR
Loji býður gestum inn á danskt menningarheimili | Collector
Loji býður gestum inn á danskt menningarheimili
Fréttastofa RÚV

Loji býður gestum inn á danskt menningarheimili

Það verða til algjörir töfrar þegar hinu hversdagslega er blandað saman við það sem kalla má háleitt og fínt í einni og sömu myndinni, segir Loji Höskuldsson listamaður. Í verkum sínum er hann gjarn á að upphefja hið litla og smáa og setja það á sama stall og það sem þykir smekklegt og fágað. „Það er eitthvað sem gerist í því ferðalagi sem ég heillast rosalega af, að taka einhvern hlut sem allir þekkja og allir eiga og allir vita hvað er og setja hann á sama stall og þetta sem fáir eiga eða fáir geta eignast,“ segir hann. Fjallar um fjölskyldu sem er með Finn Juhl á heilanum Á dögunum opnaði Loji sýningu sem nefnist Nágrannar í galleríinu V1 í Kaupmannahöfn. Nafnið er dregið af ímyndaðri fjölskyldu sem býr í húsi við hliðina á húsi danska hönnuðarins Finn Juhl. „Þetta er fjölskylda sem er með Finn Juhl á heilanum og er að reyna að vera mjög kúltíveruð fjölskylda, tekur alls konar kúltíveraða hluti og setur inn á heimilið sitt.“ Eitt af smærri verkum sýningarinnar eru húslyklar með heimilisfangi fjölskyldunnar en húsnúmerið er þó ekki til í raun og veru. Loji hefur mikinn áhuga á módernískri hönnun og arkitektúr og hefur að undanförnu kynnt sér ævi og störf Finns Juhl. Hann var því ákveðinn upphafspunktur í hugmyndavinnu sýningarinnar. Svo rataði myndhöggvarinn Sigurjón Ólafsson líka inn í ferlið. Mikill leikur í bland við hönnun í verkunum „Það var verk eftir Sigurjón á heimili Finn Juhl og á vinnustofunni minni í Reykjavík eru lágmyndir eftir Sigurjón. Svo þurfti ég að fara í aðgerð á mjöðm í Vejle í Danmörku og fyrir framan ráðhúsið í Vejle er Sigurjón Ólafs með fullt af styttum á torginu. Þannig að Sigurjón Ólafsson kom til mín.“ Hann ákvað því að miðja sýningarinnar væri þetta ímyndaða hús í næsta nágrenni við heimili Finns Juhl. Hús hönnuðarins er í dag safn sem er opið almenningi. Til viðbótar við útsaumsverk Loja er skúlptúr eftir Sigurjón í miðju sýningarrýminu. „Þetta er Markmaður eftir Sigurjón Ólafsson sem hentaði mjög vel,“ segir listamaðurinn. Í ímyndaða húsinu eiga nefnilega að búa tveir krakkar með hönnunarsjúkum foreldrum sínum. „Þannig að það er mikið af boltum á þessari sýningu, það er ekki bara hönnun. Það er mikið af hlutum fyrir leik. Þannig að skúlptúr eftir Sigurjón sem er markmaður að skutla sér eftir bolta passaði mjög vel.“ Langstærsta verkið á ferlinum Á sýningunni má finna gríðarstórt verk sem nefnist Nútímastofa (e. A Modern Living Room). „Þetta er tveir og hálfur metri sinnum fjórir. Þetta er langstærsta verk sem ég hef gert,“ segir Loji. Á myndinni má sjá hönnun og listaverk héðan og þaðan úr veröldinni. Á veggnum hanga málverk eftir Karl Kvaran og danska listmálarann Richard Mortensen og úr loftinu hangir hreyfanlegur skúlptúr Alexander Calders. Þarna má sjá ítalska hönnun, meðal annars þekktan gólflampa og íslenskan stól sem listamaðurinn heldur mikið upp á. „Hann heitir Stacco og er stóll sem þú finnur í öllum félagsheimilum hringinn í kringum landið og á elliheimilum og í skólastofum. Þú staflar þeim upp. Þetta er mjög einfaldur stóll en mér finnst hann mjög fallegur.“ Við gerð listaverksins naut Loji aðstoðar við útsauminn í fyrsta sinn. „Þegar maður gerir nýjar sýningar þá er maður oft að ögra sjálfum sér. Ég hafði aldrei unnið með neinni annarri manneskju að verkunum til dæmis. Í þessu verki fékk ég hjálp frá Jóhönnu Pálmadóttur við að sauma málverkin. Það er rosalega mikill útsaumur í þeim. Það var svolítið gaman að vinna með einhverri manneskju sem talar nákvæmlega þitt tungumál varðandi útsaum. Þegar það komu einhverjar hindranir á leiðinni þá þurftum við rosa fá orð til að tala saman um hvað væri málið.“ Getur orðið einmannalegt á vinnustofunni Hann segir samstarfið hafa verið skemmtilegt og að það sé dýrmætt að geta átt í samtali við einhvern annan í ferlinu. Það minni hann dálítið á annars konar sköpun sem er tónlistin en Loji er í einni vinsælustu ballhljómsveit landsins, Björtum sveiflum. „Maður er svolítið einmanna á vinnustofunni. Bara allan daginn að sauma. Þannig að það er gott að eiga góða að til að hittast í gluggalausum kjallara og rokka þetta út.“ Hann vill ekki taka svo djúpt í árinni og segja að það safnist upp reiði í einverunni á vinnustofunni sem þurfi að losa um en að það sé í það minnsta gott að fá útrás endrum og eins. Rusl í görðum prýðis myndefni Gegnumgangandi stef í verkum Loja eru kyrralífsmyndir og þær eru fyrirferðarmiklar á þessari sýningu. „Ást mín á kyrralífi nær engum böndum, sko. Mér finnst svo gaman að stilla bara einhverju upp og prófa,“ segir hann. „Þetta er oft bara eitthvað rusl í görðum og mjög almennir hlutir,“ segir hann þegar hann er spurður að því hvaðan hann sæki myndefnið. „Ég er kannski svona grunnhygginn en mér finnst sumir af þessum hlutum bara ótrúlega fallegir. Eins og bara bréf utan um nammið Þrist. Ég elska Þrist. Svo finnst mér guli liturinn í nammibréfinu ótrúlega fallegur.“ Hann tekur dæmi af lítilli mynd á sýningunni. Hún sýnir Þrist, súkkulaði frá Anton Berg í fjólubláum umbúðum og danskan borðfána. Í verkinu felist tilraun til að blanda saman andstæðum litum, fjólubláum og gulum, á svipaðan hátt og Karl Kvaran gerði í sínum málverkum. Myndefnið orðið danskara með árunum Haustið 2022 tók hann í fyrsta sinn þátt í samsýningu í galleríinu V1. Ári síðar hélt hann þar einkasýningu. Eftir að samstarfið byrjaði hefur hann dvalið meira í Danmörku en áður og það hefur haft áhrif á myndmálið. „Maður er byrjaður að skoða meiri myndlist héðan og þá ósjálfrátt fer maður að bæta inn meiri reffum í söguna þeirra og eitthvað svoleiðis. Núna er ég allt í einu búinn að dýfa mér í Richard Mortensen til dæmis, málara sem ég þekkti ekki neitt. Svo er maður að fylgja alls konar fólki á Instagram og allt í einu er algorytminn fullur af einhverjum dönskum áhrifavöldum.“ Svo ratar líka hversdagsleg sjónmenning inn í verkin. Til dæmis merki flutningafyrirtækisins Danske fragtmænd. „Þetta er eitthvað sem ég sá úti á götu. Í þessu verki er ég að nota útsaumshefðina og leika mér með hana. Oft voru gerðir svona bekkir í borða í kringum myndefnið. Í staðinn fyrir að taka eitthvað hefðbundið blómamynstur þá tók ég þetta danska logo frá þessu flutningafyrirtæki og setti það í kringum myndina. Mér fannst það vera skemmtilegt spil með hefðina.“ Staða textíllistarinnar góð „Ég er alltaf að sjá fleiri og fleiri frábæra myndlistarmenn og myndlistarkonur sem eru að gera textílverk og hafa textíl í verkum sínum. Ég myndi alveg segja að það sé að koma mikið af textílhandverki inn í myndlistarheiminn,“ segir hann. Skýringuna megi ef til vill rekja til uppgangs gervigreindar: „Fólk þráir eitthvað sem er gert í höndunum.“ Hann segist halda og vona að textíllinn hafi sótt í sig veðrið að undanförnu. „Það er allavega alltaf gaman að fá tækifæri til að sýna einhvers staðar og gera verk og að fólk kunni að meta þetta líka. Það er ótrúlega mikil hefð í útsaumi. Elstu verk á Íslandi eru útsaumsverk sem voru uppi í kirkjum og reflar.“ Hann segist hvergi nærri vera hættur að sauma út. Enn að prófa nýja hluti „Ég lofaði sjálfum mér að ég myndi hætta þessu um leið og ég væri hættur að ögra sjálfum mér. Þá fer ég að gera eitthvað annað. Mér finnst þetta enn þá bara svo ótrúlega gaman.“ Hann sé enn að finna nýjar aðferðir til að vinna verk sín. Hann hafi sótt meira í hefðina eftir því sem virðing hans fyrir henni jókst. Fyrst hafi hugsunin ekki verið dýpri en svo að hann ætlaði að sauma út mynd. „Svo verður maður bara eldri og dýfir sér í þetta. Mér finnst ég enn þá vera að finna og prófa nýja hluti. Það er enn þá mikill leikur í þessu. Um leið og leikurinn er farinn þá kannski fer maður aftur í vídjóverkin.“ Loji Höskuldsson opnaði einkasýningu í Kaupmannahöfn á dögunum þar sem hann tvinnar saman hönnunarvörum hversdagslegum hlutum neyslumenningar í nýjum útsaumsverkum. Á sýningunni gefur að líta langstærsta verk sem Loji hefur gert. Rætt var við Loja Höskuldsson í Víðsjá. Hægt er að hlusta á viðtalið við hann í spilaranum hér fyrir ofan. Það hefst þegar rétt rúmlega 30 mínútur eru búnar af þættinum.

Go to News Site