Fréttastofa RÚV
Engar viðvaranir eru í gildi vegna veðurs sem stendur en gular viðvaranir taka gildi klukkan fjögur og fimm síðdegis vegna suðaustan hvassviðris eða storms og snjókomu á Faxaflóa, Suðurlandi og Suðausturlandi. Viðvaranirnar munu ná til flestra landshluta að undanskildu Norðausturlandi og Austfjarða. Erfið akstursskilyrði Aksturskilyrði verða erfið á Reykjanesbraut, Kjalarnesi og Hellisheiði eftir kl 16 í dag vegna hríðar, en skyggni batnar með rigningu og slyddu skömmu síðar. Vindhviður verða yfir 35 m/s við Hafnarfjall og á Kjalarnesi þá og snjóar áfram á Hellisheiði og í Þrengslum og býast má við hríð á fjallvegum norðvestantil á landinu í kvöld. Það lægir og styttir upp suðvestanlands fyrir miðnætti. Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði og Brattabrekka eru nú opnar en þeim var lokað í gær. Hálka eða snjóþekja eru víða á öðrum leiðum. Á Austurlandi þarf að blása talsverðum snjó svo hægt verði að opna Fjarðarheiði og Fagradal. Unnið er að opnun en það gæti tekið tíma að opna veginn. Hlýnandi veður Í dag er spáð breytilegri átt 3-10 m/s, en norðvestan 13-20 á Austfjörðum fram eftir morgni. Snjókoma með köflum á norðaustanverðu landinu, en annars skýjað með köflum. Frost 0 til 8 stig. Vaxandi suðaustanátt seinnipartinn og fer að snjóa suðvestantil. Suðaustan 18-25 með snjókomu eða rigningu í kvöld, en hægari og dálítil snjókoma norðaustanlands. Hlýnandi veður. Dregur úr vindi í nótt, vestan og suðvestan 8-15 m/s og skúrir eða slydduél í fyrramálið, en norðaustan 5-13 og snjókoma norðan til. Hiti í kringum frostmark.
Go to News Site