Fréttastofa RÚV
Guðlaug Erlendsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri í nýjum samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík. Sex sóttu um starfið. Markmiðið ráðningarinnar að tryggja að hægt verði að bjóða upp á skólastarf næsta haust, að því gefnu að eftirspurn og aðstæður leyfi. Niðurstöður úr nýlegri forskráningu foreldra sýni að hluti barnafjölskyldna sem áttu lögheimili í bænum fyrir rýmingu vilji snúa aftur heim. Guðlaug hefur stafað sem skólastjóri við Grunnskóla Borgarness undanfarin tvö ár. Þar áður starfaði hún sem aðstoðarskólastjóri við Grunnskóla Grindavíkur í sjö ár og gegndi jafnframt stöðu deildarstjóra miðstigs. Guðlaug er með doktorspróf í menntavísindum frá Háskóla Íslands, auk M.Ed. í stjórnun menntastofnana, MA í félagsfræði og BA í sál- og afbrotafræði og kennsluréttindi frá Kennaraháskóla Íslands. Hún hefur einnig starfað við kennslu í Mósambík og Namibíu, auk þess að hafa verið umsjónarkennari við Fellaskóla, Brekkubæjarskóla og Grunnskóla Raufarhafnar. Guðlaug mun hefja störf við fyrsta tækifæri og leiða undirbúning fyrir skólahald í Grindavík í haust, að því er segir í tilkynningu frá Grindavíkurbæ.
Go to News Site