Collector
Segir fulla ástæðu til að skoða breytingar á skólakerfinu | Collector
Segir fulla ástæðu til að skoða breytingar á skólakerfinu
Fréttastofa RÚV

Segir fulla ástæðu til að skoða breytingar á skólakerfinu

Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að tillögur ráðherra um breytingar á skólakerfinu þurfi að ræða í heild. Margt í kerfinu megi betur fara. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, vill lengja skólaárið og fjölga kennslustundum, til að bæta námsárangur íslenskra nemenda. Segir nemendur undir í samanburði við önnur ríki Í minnisblaði ráðherra kemur fram að íslenskir nemendur séu undir í samanburði við nemendur í öðrum ríkjum um fjölda kennsludaga og heildarfjölda kennslustunda. Skóladagar á Íslandi séu 180 dagar samkvæmt grunnskólalögum og fjöldi kennsludaga um 170. Sem dæmi þurfi að fjölga kennsludögum um 30 til að standast samanburð við danska skólakerfið. Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, vill skoða breytingar á íslenska skólakerfinu. „Ég held að þetta sé bara tilefni til þess að við tökum núna, ríki og sveitarfélög, góða umræðu um þetta, hvernig við sjáum menntakerfið okkar til framtíðar. Og ég held að það sé full ástæða til.“ Á von á fundi með ráðherra Formaður Kennarasambands Íslands segir tillögur ráðherra vera sérkennilegar í ljósi samtals milli kennara og stjórnvalda í kjölfar kjarasamninga í fyrra. Um áhrifin á kjarasamninga kennara, segir Jón Björn, auðvitað komi samningarnir inn í umræðuna. „Þess vegna held ég að það sé mikilvægt að ríki og sveitarfélög setjist núna niður og ræði þessar hugmyndir sem menntamálaráðherra viðraði. Síðan getum við tekið það áfram inn í þær umræður sem við erum með núna í tengslum við kjarasamningsgerðina.“ Jón Björn á von á að ráðherra boði sig til fundar á næstunni. „Við erum alltaf tilbúin til samtals við ráðherra. Ríkið er náttúrulega stefnumótandi í menntamálum og við erum framkvæmdaaðili. Þannig við erum alltaf tilbúin, hún er með símanúmerið mitt og ég geri ráð fyrir að við heyrum í henni.“

Go to News Site