Collector
Rannsaka hvort Sephora beini markaðssetningu að börnum | Collector
Rannsaka hvort Sephora beini markaðssetningu að börnum
Fréttastofa RÚV

Rannsaka hvort Sephora beini markaðssetningu að börnum

Ítalska samkeppniseftirlitið rannsakar hvort snyrtivörufyrirtækin Sephora og Benefit hafi beint markaðsherferðum sínum að börnum, þar á meðal á kremum gegn öldrun húðar. Til skoðunar er á Ítalíu hvort fyrirtækin hafi beint markaðssetningu á andlitsmaska, serum og kremum sem sögð eru varna öldrun húðarinnar, að ungum stúlkum, jafnvel undir tíu ára. Samkeppniseftirlit Ítalíu segir aðferðir fyrirtækjanna tengjast víðtækari vanda sem sé húðumhirðuárátta barna. Fram kemur í umfjöllun The Guardian að samkeppniseftirlitið telji að svo virðist sem snyrtivörufyrirtækin, sem bæði eru í eigu frönsku samsteypunnar LVMH, hafi tekið upp sérstaklega lúmska markaðsstefnu sem feli í sér að mjög ungir áhrifavaldar hvetji ungt fólk til að kaupa alls kyns snyrtivörur. Húsleit var gerð í húsakynnum samsteypunnar á Ítalíu í fyrradag. Þá segir í yfirlýsingu samkeppniseftirlits Ítalíu að áhyggjur séu af því að þessar snyrtivörur séu ekki ætlaðar börnum og að það sé ekki tekið fram á þeim, né hafi vörurnar verið prófaðar á börnum. Því sé verið að rannsaka hvort kynningarefni sem hvetji börn til að nota vörurnar sé villandi. Fyrirtækin hafa heitið því að vera samvinnufús við rannsóknina og segjast vinna samkvæmt lögum á Ítalíu.

Go to News Site