Fréttastofa RÚV
Sigríður Á. Andersen þingflokksformaður Miðflokksins kveðst styðja þingsályktunartillögu um bann við hylmingu andlits í opinberu rými heilshugar. Fréttastofa greindi frá því í morgun að sjö af átta þingmönnum Miðflokksins hefðu lagt fram þingsályktunartillöguna, en að Sigríður væri ekki meðal flutningsmanna hennar. Sigríður segir einu ástæðuna fyrir því vera annir í þingstörfum og ekkert sé hægt að lesa úr því að hún sé ekki á meðal flutningsmanna. Hún mæli almennt ekki fyrir þingmannamálum nema að hún hafi legið sérstaklega yfir þeim. Hún vilji fela ríkisstjórninni að skoða þetta mál. Getur vel verið að „búrku- og niqab tendens“ sé í rénun Það hafi iðulega komið upp í umræðunni og minnir Sigríður á að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi lagt sams konar tillögu fram árið 2011. „Fólki fannst þetta fjarri okkur þá en svo hefur það séð hvernig þróunin hefur verið,“ segir Sigríður. „Svo getur vel verið að þetta sé í rénun, þessi búrku- og niqab tendens,“ bætir hún við. Hún segir að sjálfsögðu útfærsluatriði hvernig eigi að standa að slíkri löggjöf án þess að það hafi áhrif á jólasveina með gerviskegg eða annað slíkt. Hægt sé að horfa til annarra landa sem hafi útfært bann við hylmingu andlits á almannafæri á ýmsa vegu.
Go to News Site