Collector
Gauti tvöfaldur Íslandsmeistari í alpagreinum | Collector
Gauti tvöfaldur Íslandsmeistari í alpagreinum
Fréttastofa RÚV

Gauti tvöfaldur Íslandsmeistari í alpagreinum

Keppni hélt áfram á Skíðamóti Íslands hélt áfram í dag og er keppt í alpagreinum í Hlíðarfjalli á Akureyri. Konurnar tvær sem kepptu fyrir Ísland í alpagreinum á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í síðasta mánuði voru áberandi í stórsviginu í dag. Sonja Lí Kristinsdóttir leiddi eftir fyrri ferð og hafði þá 42 hundraðshluta úr sekúndu í forystu á næstu konu. Elín Elmarsdóttir van Pelt náði svo besta tímanum í seinni ferðinni, en Sonja var þar með fjórða besta tímann. Samanlagður tími Sonju Lí úr ferðunum tveimur var þó sá besti og Sonja fagnaði þar með Íslandsmeistaratitlinum í stórsvigi. Tveir Íslandsmeistaratitlar á tveimur dögum Gauti Guðmundsson sem vann svigkeppnina í gær bætti svo um betur í dag þegar hann skákaði Jón Erik Sigurðssyni og Matthíasi Kristinssyni annan daginn í röð. Samanlagður tími Gauta úr báðum ferðum stórsvigsins var 0,42 sekúndum betri en hjá Matthíasi sem varð annar. Gauti er því tvöfaldur Íslandsmeistari þetta árið sem ætti að vera ágæt sárabót eftir að hafa misst naumlega af því að fá þátttökurétt á Ólympíuleikunum. Ólympíufararnir í sérflokki í skíðagöngu Skíðagönguhluti Skíðamóts Íslands er svo haldinn á Ólafsfirði og hófst í dag, tveimur dögum á eftir áætlun þar sem veður setti strik í reikninginn. Þar voru keppendur Íslands af Ólympíuleikunm í sérflokki eins og búast mátti við. Keppt var í skíðagöngu með hefðbundinni aðferð í dag og þar fagnaði Dagur Benediktsson sigri í karlaflokki og Kristrún Guðnadóttir varð Íslandsmeistari kvenna. Á morgun verður keppt í göngu með frjálsri aðferð.

Go to News Site