Collector
Lögmaður Quang Le sakar lögregluna um að mismuna fólki eftir uppruna | Collector
Lögmaður Quang Le sakar lögregluna um að mismuna fólki eftir uppruna
Fréttastofa RÚV

Lögmaður Quang Le sakar lögregluna um að mismuna fólki eftir uppruna

Lögreglan réðst inn á tvö heimili í Reykjavík í gær og handtók son og móður Quang Le. Quang Le var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum í mars 2024, vegna gruns um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Quang Le, sakar lögregluna um að mismuna fólki eftir uppruna og ætlar að kæra aðgerðirnar. Segir aðgerðir lögreglu úr hófi Sveinn Andri segir lögreglumenn hafi ráðist inn á bæði heimili, snemma morguns í gær brotið upp hurðir og öskrað á heimilisfólk. „Út af kaupsamningi um fasteign sem þau grunar að sé andlag peningaþvættis,“ segir Sveinn Andri. Sveinn Andri er ekki lögmaður þeirra sem voru handtekin en hann segir að kaupsamningurinn sé milli drengsins og ömmu hans. Hann telur að eðlilegra hefði verið ef lögreglan hefði kallað þau til yfirheyrslu, séu grunsemdir um kaupsamninginn. Fólkinu var haldið í fangaklefa í 12 klukkustundir. Sveinn Andri segir þau bæði með skráða verjendur en að lögreglan hafi ekki látið verjendurna vita af handtökunum. „Lögreglan er að fara fullkomu offari, með refsiverðum hætti. Brýtur þarna gegn 132. grein hegningarlaga. Við munum í framhaldinu kæra þá yfirmenn lögreglunnar sem tóku þessa ákvörðun um að fara fram með þessum hætti,“ segir Sveinn Andri. Hann telur að lögregluna vera að refsa fjölskyldumeðlimum Les, út frá þjóðerni og þeim málum sem Quang sætir rannsókn vegna. „Hefðu þetta verið Íslendingar þá hefðu þau ekki sætt þessari meðhöndlun. Þetta er bara af því þetta er fólk af þessum uppruna, þótt þau séu íslenskir ríkisborgarar. Og staðan er sú að strákurinn jafnar sig en ég veit ekki með gömlu konuna.“ Lögreglan segist hafa starfað innan valdheimilda Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gat ekki staðfest, í samtali við fréttastofu, að aðgerðirnar í gær tengdust meintum brotum Les. Lögreglan hafi starfað innan valdheimilda við handtökurnar og gætt meðalhófs. Ákvarðanir um handtökurnar hafi verið teknar út frá rannsóknarhagsmunum.

Go to News Site