Collector
Alvarleg staða á Hólum í Hjaltadal | Collector
Alvarleg staða á Hólum í Hjaltadal
Fréttastofa RÚV

Alvarleg staða á Hólum í Hjaltadal

Hólar eru einn sögufrægasti staður landsins. Þar hefur verið skólahald og biskupssetur með hléum frá 12. öld. Íbúar vilja fá skýr svör um framtíð Hóla, staðan er mjög slæm að þeirra mati. „Húsnæði skólans hefur verið vanrækt um viðhald til langs tíma og fólk er ekki sammála um hvaða leið á að feta í þeim efnum,“ segir Einar Svavarsson, íbúi á Hólum. Ákveðið var í desember 2023 að Háskólinn á Hólum kæmi ekki að annarri starfsemi á staðnum en þeirri sem tengdist skólastarfinu beint. Þykir mörgum ástandið hafa versnað til muna. Byggingar eru í slæmu ástandi, snjómokstri illa sinnt og vegir drabbast niður svo dæmi séu tekin. Umkomulausir og Kirkjuþing ályktar Íbúar og velunnarar Hóla hafa miklar áhyggjur og finnst þeir umkomulausir. Kirkjuþing ályktaði nýverið um þungar áhyggjur þjóðkirkjunnar af stöðunni. Þar var mikilvægi þess að móta skýra stefnu til framtíðar undirstrikað. „Varðandi þjónustu á Hólum þá lendum við hér á milli ríkis og sveitafélags og þar vísar gjarnan hvor á annan í því sambandi. Kirkjan hefur áhyggjur af framtíð Hólastaðar og hvetur ríkið til þess að sinna staðnum þannig að sómi sé að," segir Gísli Gunnarsson, vígslubiskup á Hólum. Framkvæmdahópur á vegum ríkisins hefur lagt til að eignir háskólans verði seldar og starfsemi hans flutt að mestu á Sauðárkrók. Íbúar telja að farsælla væri að hlusta á raddir þeirra. Lausnin sé í sjónmáli, ef vilji er fyrir hendi: „Ég held að það sé til ráða að hlusta á þessar mótbárur og tillögur sem hafa verið lagðar fram til að rétta þennan kúrs af,“ segir Einar. Sveitarstjórn og ríki hafa tekist á í mörg ár Íbúar og velunnarar Hóla birtu nýverið yfirlýsingu þar sem þeir óska eftir auknu samráði. Þeir hvetja ríkið, sveitarfélagið og háskólann til að standa með íbúum að umhirðu Hólastaðar svo sómi sé að. Sveitarstjórinn í Skagafirði tekur undir þetta og telur það algjört forgangsmál að skýra hver eigi að gera hvað. „Ég kann svo sem ekki að segja til um hvað skýrir seinaganginn. Við erum búnir að eiga í samtali við ríkisvaldið um fráveitumálið sérstaklega í 15-16 ár. Það sem vantar er bara ákvörðun af hálfu ríkisins um hvaða leið þeir sjá fyrir sér í þessu,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri í Skagafirði. Myglaðar byggingar, holóttir vegir og illa hirtar lóðir valda íbúum á Hólum í Hjaltadal verulegum áhyggjum. Ríki og sveitarfélag benda hvort á annað og óvissa er um framtíð þessa sögufræga staðar.

Go to News Site