Fréttastofa RÚV
Annar keppnisdagur af þremur á Íslandsmótinu í sundi í 50 metra laug fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði í dag. Snorri Dagur Einarsson sem syndir fyrir Sundfélag Hafnarfjarðar náði EM lágmarkinu í 50 metra bringusundi en þá grein vann hann með miklum yfirburðum. Sigurtími hans var 27,92 sekúndur og hann var rúmlega einni og hálfri sekúndu á undan næsta manni í bakkann. Hann synti 62 hundraðshlutum úr sekúndu undir EM lágmarkinu. Birnir Freyr nálægt Íslandsmetinu Birnir Freyr Hálfdánarson synti líka vel í úrslitum 200 metra fjórsundsins eða á tveimur mínútum og 4,32 sekúndum, aðeins 27 hundruðustu úr sekúndu frá eigin Íslandsmeti í greininni sem hann setti fyrir þremur árum. Meðal annarra úrslita í dag má svo nefna sigur Jóhönnu Elínar Guðmundsdóttur í 50 metra flugsundinu. Hún tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn þar mjög örugglega á tímanum 27,64 sekúndum. Þá er einnig vert að nefna sigur Guðmundar Leós Rafnssonar úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar í 100 metra skriðsundi en hann vann þá grein á 51,70 sekúndum. Í 200 metra skriðsundi kvenna setti Vala Dís Cicero, einnig úr SH, unglingamet þegar hún vann með yfir burðum á tveimur mínútum og 1,44 sekúndum. Hún var meira en fimm og hálfri sekúndu á undan næstu konu. Sýnt verður beint frá lokakeppnishluta Íslandsmótsins í sundi á RÚV 2 á morgun frá klukkan 16:20.
Go to News Site