Collector
Misbrestir barnaverndar Reykjanesbæjar nái til nærri allra þátta starfseminnar | Collector
Misbrestir barnaverndar Reykjanesbæjar nái til nærri allra þátta starfseminnar
Fréttastofa RÚV

Misbrestir barnaverndar Reykjanesbæjar nái til nærri allra þátta starfseminnar

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) gerir miklar athugasemdir við vinnubrögð barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar. Sviðstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar segir skýrsluna áfall og lofar úrbótum. Í skýrslunni eru gerðar tuttugu og fimm alvarlegar athugasemdir. Herdís Gunnarsdóttir forstjóri GEV segir stofnunina einkum hafa gert athugasemdir við vinnslu mála sem varða börn í fóstri og vistun utan heimilisins. Hún segir misbrestina ná til nær allra þátta í málavinnslu. Stofnunin hafi ekki hafa fengið upplýsingar um að börnin hafi hlotið beinan skaða af því. „Ef svo væri þá hefðum við tilkynnt slíkt til lögreglu. Hins vegar er það þannig að þegar það er misbrestur af þessu tagi og hann er langvarandi þá getur það haft áhrif á börnin til lengri tíma, sem eru í viðkvæmri stöðu.“ Aðspurð segir Herdís stofnuninni ekki hafa borist upplýsingar sem bendi til þess að staðan sé sambærileg hjá barnaverndarþjónustu annarra sveitarfélaga. Þau fylgist þó vel með og minni á að mikilvægt sé að tilkynna allan grun um misbrest til stofnunarinnar. Barnaverndarþjónusta Reykjanesbæjar hefur fram til áramóta að gera þær úrbætur sem eftirlitsstofnunin gerir kröfur um. Skrásetning og frágangur mæti afgangi vegna álags Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs hjá Reykjanesbæ, segir athugasemdirnar mjög alvarlegar og mikið áfall. Vinna að úrbótum sé þegar hafin. Hún voni svo sannarlega að engin börn hafi hlotið varanlegan skaða af. „Ég vona bara svo sannarlega að það sé rétt. En það er hins vegar ábótavant að það eru of sein viðbrögð og tekur of langan tíma að bregðast við ábendingum og beiðni um aðstoð og það er náttúrulega partur af þessu verklagi sem þarf að laga,“ segir Hera. Aðspurð hvað hafi orsakað þessa alvarlegu misbresti í vinnslu mála segir Hera margt spila þar inn í, til að mynda skorti skipulag og umgjörð um innra eftirlit. Hún nefnir einnig álag og skort á fjármagni og starfsmönnum. „En alveg eins og í félagsþjónustu almennt þá er mikið álag og starfsmannaskortur,“ segir Hera. „Þar af leiðandi verður valið oft að sinna fólkinu og skorturinn kemur þá kannski fyrst og fremst fram í því sem er skylda að skrá og ganga frá með formlegum hætti.“ Hún telur að Reykjanesbær, sem og önnur sveitarfélög, geti gert betur í þeim efnum og sett meira fjármagn í barnaverndarþjónustu.

Go to News Site