Collector
Keramíkframleiðsla stöðvast vegna orkuskorts | Collector
Keramíkframleiðsla stöðvast vegna orkuskorts
Fréttastofa RÚV

Keramíkframleiðsla stöðvast vegna orkuskorts

Stríðsátökin í Mið-Austurlöndum hafa áhrif langt úr fyrir þann heimshluta. Keramikframleiðendur á Indlandi hafa neyðst til að stöðva framleiðslu í verksmiðjum sínum í borginni Morbi í Gurjat-héraði vegna orkukrísunnar sem komin er upp vegna stríðsátakanna. Keramikverksmiðjur í borginni framleiða 90% allra gólf- og veggflísa á Indlandi og eru einn stærsti framleiðandi heims á þessu sviði. Keramikframleiðsla þróaðist í Gurjat-héraði vegna þess hversu mikinn leir er þar að finna og aðstaða er góð til útflutnings enda borgin stutt frá hafi. Hátt í milljón manns starfa við keramíkframleiðslu í Morbi eða í tengdum störfum. Framleiðslan hefur legið niðri í þrjár vikur, því ekki er hægt að kynda keramíkofnana þar sem skortur er á fljótandi jarðolíugasi. Indverjar flytja inn 60% af gasinu sem þeir þurfa erlendis frá og megnið af því er flutt frá Mið-Austurlöndum í gegnum Hormússund. Stjórnvöld í Nýju-Delí hafa neyðst til að forgangsraða í orkumálum og heimili landsins hafa forgang að gasi, umfram fyrirtæki. Fjölmargar verksmiðjur með mismunandi framleiðslu hafa þurft að stöðva framleiðslu sína vegna þessa. Indversk stjórnvöld hafa aukið framleiðslu innanlands á fljótandi jarðolíugasi og samið um flutning og keypt nýjan farm frá Ástralíu og Rússlandi. Vonir standa til að sá innflutningur muni létta á eftirspurn með tímanum.

Go to News Site