Collector
Í dag: Meistarakeppnin í fótbolta og Íslandsmótið í sundi | Collector
Í dag: Meistarakeppnin í fótbolta og Íslandsmótið í sundi
Fréttastofa RÚV

Í dag: Meistarakeppnin í fótbolta og Íslandsmótið í sundi

Nú styttist í Íslandsmótið í fótbolta en keppni í Bestu deild karla hefst 10. apríl. Formlegt upphaf keppnistímabilsins verður þó í dag þegar Íslands- og bikarmeistarar síðasta árs mætast í meistarakeppni KSÍ. Íslandsmeistarar Víkings og bikarmeistarar Vestra eigast þá við á heimavelli Íslandsmeistaranna á Víkingsvelli klukkan 14:00. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV og hefst útsending k. 13:50 . Sé jafnt eftir venjulegan leiktíma verður farið beint í vítaspyrnukeppni til að ákvarða sigurvegara. Í Meistarakeppni KSÍ karla er keppt um Sigurðarbikarinn sem gefinn var af KR til minningar um Sigurð Halldórsson. Breiðablik er núverandi handhafar bikarsins eftir að hafa unnið 3-1 sigur á KA í fyrra. Íslandsmótið í sundi í 50 metra laug Íslandsmótinu í sundi í 50 metra laug lýkur svo í Ásvallalaug í Hafnarfirði í kvöld og verður úrslitahlutinn sýndur beint á RÚV 2 klukkan 16:20 . Besta sundfólk landsins er þar samankomið og eltist við Íslandsmet og lágmörk inn á Evrópumótið í 50 metra laug í sumar.

Go to News Site