Collector
Um 20.000 sjómenn fastir um borð í skipum á Persaflóa | Collector
Um 20.000 sjómenn fastir um borð í skipum á Persaflóa
Fréttastofa RÚV

Um 20.000 sjómenn fastir um borð í skipum á Persaflóa

Margar áhafnir hafa verið um borð í skipum sínum frá því að stríðið braust út í Mið-Austurlöndum 28. febrúar. Að minnsta kosti 8 sjómenn eða hafnarverkamenn hafa farist eða verið drepnir í árásum síðan stríðið hófst. Samkvæmt Alþjóðasambandi flutningaverkamanna, ITF, hafa samtökunum borist yfir 1000 tölvupóstar og skilaboð frá félagsmönnum og áhafnarmeðlimum sem eru fastir um borð í skipum við Hormússund eða í nágrenni. Sumir voru að spyrjast fyrir um vinnuréttindi sín á stríðstímum og á stríðssvæðum og aðrir sendu myndbandsupptökur af árásum nærri skipum sínum og óskuðu eftir aðstoð við að komast frá borði því þeir væru í hættu. Þá bárust einnig skilaboð þar sem fram kom að matur og drykkjarvatn væri af skornum skammti og ekki væri hægt að sinna grunnþörfum áhafnarmeðlima. Einhverjum skipsáhöfnum hefur verið meinað að yfirgefa skip þar sem ekki er hægt að skipta um áhafnir eða fljúga þeim burt. Þá barst tölvupóstur frá einum sjómanni sem bað um staðfestingu á því að launin hans hækki úr 16 bandaríkjadollurum á dag í 32 dollara á dag, vegna þess að skip hans væri á stríðssvæði. Það jafngildir um 2.000 - 4.000 íslenskum krónum á dag. Alþjóðasamband flutningaverkamanna segir þetta dæmi sýna að eigendur skipanna fari ekki eftir kjarasamningum til að tryggja áhöfnum sínum mannsæmandi laun.

Go to News Site