Collector
12 tonn af Kitkat-súkkulaði týnd | Collector
12 tonn af Kitkat-súkkulaði týnd
Fréttastofa RÚV

12 tonn af Kitkat-súkkulaði týnd

Tólf tonnum af Kitkat-súkkulaði, eða rúmum 400.000 súkkulaðistykkjum, var stolið þegar verið var að flytja þau frá verksmiðju á Ítalíu til dreifingarstöðvar í Póllandi á dögunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Nestlé sem framleiðir súkkulaðið. Í yfirlýsingunni segir að bæði flutningabílsins og farmsins hafi verið saknað síðan í síðustu viku. Farminum átti að dreifa um alla Evrópu. Nestlé telur að súkkulaðið verði selt á svartamarkaði. Um 400.000 súkkulaðistykkjum var stolið á dögunum.EPA / NEIL HALL

Go to News Site