Collector
Curver fær ekki að heita Curver | Collector
Curver fær ekki að heita Curver
Fréttastofa RÚV

Curver fær ekki að heita Curver

Mannanafnanefnd hefur í annað sinn hafnað umsókn tónlistar- og listamannsins Curver Thoroddsen um að fá nafn sitt löglega samþykkt í mannanafnaskrá. Þetta er ekki fyrsta umsókn Curver en hann sótti fyrst um fyrir 20 árum þegar hann var þrítugur. Nafnið tók hann upp ungur og er það komið frá Curver-ruslatunnum sem lesendur muna mögulega eftir. „Allir vinir mínir og fjölskylda þekkja mig sem Curver,“ segir hann sem tekur fram að það hafi tekið stuttan tíma fyrir fólkið í kringum hann að taka nafnið í fulla notkun. „En þarna kemur ríkið inn í og segir nei, þú mátt það ekki af því að C er ekki bókstafur í íslenska stafrófinu,“ segir Curver sem kveðst þó hafa skilning á því út frá málverndarstefnu. Í úrskurði nefndarinnar segir að nafnið taki vissulega eignarfallsendingu. Meginástæða höfnunarinnar er þó sú að stafinn C er ekki að finna í íslenska stafrófinu. Fjögur skilyrði mannanafnanefndar fyrir nýju eiginnafni Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. List eða raunveruleiki? Það vakti nokkra athygli þegar Curver sótti síðast um að breyta um nafn en þá keypti hann heilsíðuauglýsingu í DV þar sem hann tilkynnti að frá og með deginum 1. febrúar 2006 tæki hann alfarið upp nafnið Curver Thoroddsen. Það var í kringum 30 ára yfirlitssýningu á verkum hans sem hann hélt í Nýlistasafninu. Curver hélt á þessu ári 50 ára yfirlitssýningu á Korpúlfsstöðum og lét því aftur á það reyna að fá nafnið samþykkt. Hann segir að mikið af þeirri list sem hann skapi sé raunveruleiki og list á sama tíma. Nafnabreytingin hafi þó ekki verið fyrst hugsuð sem gjörningur heldur sæki hann efnivið í raunveruleikann. „Ég er að gera hversdagslega hluti sem ég er að gera í raunveruleikanum og set það í samhengi myndlistar,“ segir Curver. „Eins og að taka íbúðina mína í gegn og það verið að fylgjast með því. Eða að borða hamborgara í eina viku og fólk gat komið og fylgst með því,“ segir hann. Curver er einnig þekktur tónlistarmaður undir eigin nafni og sem meðlimur í hljómsveitum á borð við Ghostdigital og Brim. Getur ekki verið Curver á Slapp Curver segir að honum þyki enn vænt um nafnið sem hann var skírður. Því fylgi þó ónot þar sem hann er hættur að nota nafnið en er enn þá skráður fyrir því í Þjóðskrá. „Þá finnst mér þetta svona óþægilegt eftir smá stund þegar maður fær reikninga og annað undir þessu gamla nafni,“ segir hann. Annað sem hann rak sig á nýverið var tilraun hans til að hinn nýja íslenska samfélagsmiðil Slapp . Þar skrá notendur sig inn með rafrænum skilríkjum og er það gert til þess að koma í veg fyrir að notendur geti skráð sig undir fölsku nafni og búið til gerviaðgang. „Þeir voru mjög almennilegir en þeir sögðu að þeir hefðu ákveðið í byrjun að það væri ekki hægt að gera neinar undanþágur, segir Curver. „Margir hefðu spurt en svo það væru engir gerviaðgangar þá væri þetta tengt við þjóðskrá.“ Verið sé að skoða möguleikann á að nýta gælunöfn en það hafi ekki enn verið ákveðið. Curver verður þá einnig hugsað til listamanna sem hafa starfað undir öðru nafni, mögulega í áratugi, sem geta þá ekki notað listamannanöfn sín. „Og verra er kannski með þá sem vilja ekki nota nafnið sitt og vilja vera skráðir öðruvísi þó að þeir geti ekki eða vilji ekki breyta því í þjóðskrá,“ segir Curver. „Mér finnst þetta flott hjá þeim en þarna gat ég því miður ekki verið með,“ Ætlar ekki að láta reyna á Körver Curver bendir á að hann sé ekki með neinu móti að reyna að svindla á kerfinu með því að taka upp nafnið. „Ég er auðvitað með sömu kennitölu, það er fullt af fyrirtækjum sem eru með kennitölur, það er eins og ég vilji svindla á kerfinu með því að vilja heita það sem ég heiti,“ segir hann. „Þó að ég skilji og fíli íslensku málverndarstefnuna þá samræmist þetta ekki að ég sem fullorðinn einstaklingur megi ekki heita það sem ég heiti, ég megi ekki skrásetja mig þannig,“ segir hann. Curver segir að fólk hafi bent honum á að mögulega fengi hann nafn sitt samþykkt ef hann breytti því í Körver. „En það er ekki nafnið sem ég heiti,“ segir hann. „Það er bara ekki nafnið.“

Go to News Site