Collector
Sjö íbúðir fyrir eldri borgara á Selfossi standa tómar | Collector
Sjö íbúðir fyrir eldri borgara á Selfossi standa tómar
Fréttastofa RÚV

Sjö íbúðir fyrir eldri borgara á Selfossi standa tómar

Bæjarfulltrúi í minni hluta í bæjarstjórn Árborgar hefur áhyggjur af stöðu íbúðarhúsnæðis á svokölluðu Grænumarkarsvæði á Selfossi, þar sem eru sextán eldri borgaraíbúðir. Nú eru sjö íbúðir lausar í húsunum við Grænumörk eitt og þrjú og bæjarfulltrúinn segir þær meira og minna ónýtar. Bæjarstjóri Árborgar segir að íbúðirnar sextán verði eitthvað í notkun áfram en muni þó á endanum víkja fyrir nýjum byggingum. Ellý Tómasdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Árborgar, sem situr þar í minni hluta. Hún hefur áhyggjur af stöðu húsnæðismála hjá eldri borgurum á Grænumarkarsvæðinu svonefnda á Selfossi. „Það er svolítið um lausar íbúðir hjá okkur í Grænumörkinni, Grænumörk 1 og 3 en staðan er einfaldlega þannig að þessar íbúðir eru ekki ásættanlegar fyrir eldra fólk lengur og við þurfum að fara að horfa lengra og sjá hvað við ætlum að gera og byggja upp íbúðir fyrir eldra fólk í Árborg,” segir Ellý. Hvað eru margar lausar íbúðir í dag? „Samkvæmt því, sem ég síðast vissi þá eru sjö íbúðir lausar en þeim verður ekki úthlutað eins og er út af því að þær eru í rauninni ekki ásættanlegar fyrir íbúa að búa í,” segir Ellý. Þannig að þær eru hálfónýtar eða hvað? „Já í rauninni, þær eru þannig að við viljum ekki að fólk sé að búa þarna, við þurfum að fara að horfa til framtíðar með því að byggja upp nýjar íbúðir,” segir Ellý. Samkvæmt upplýsingum frá Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra í Árborg, verða eitthvað af íbúðunum 16 í Grænumörk eitt og þrjú í notkun áfram en á endanum munu þær víkja fyrir nýjum byggingum. Nýtt deiliskipulag sé í vinnslu og markmiðið sé að auka þjónustu við íbúa á svæðinu og bjóða upp á fjölbreytt framboð íbúða.

Go to News Site