Collector
Sigurður Íslandsmeistari í snóker i fyrsta sinn | Collector
Sigurður Íslandsmeistari í snóker i fyrsta sinn
Fréttastofa RÚV

Sigurður Íslandsmeistari í snóker i fyrsta sinn

Sigurður Kristjánsson varð í dag Íslandsmeistari í snóker í fyrsta sinn. Sigurður hafði betur gegn ríkjandi Íslandsmeistara, Þorra Jenssyni, sem hafði einmitt betur gegn Sigurði í úrslitaleiknum fyrir ári. Sigurður með Íslandsmeistarabikarinn í dag.Billiardsamband Íslands Úrslit Íslandsmótsins hófust á Billiardbarnum á föstudag með 16 manna úrslitum. Þorri byrjaði úrslitaleikinn í dag af miklum krafti og komst í 3-0. Þá hrökk Sigurður heldur betur í gang, vann næstu fjóra ramma og komst 3-4 yfir áður en Þorri jafnaði í 4-4. Sigurður komst í 6-4, Þorri minnkaði í 5-6 en Sigurður vann lokarammann og leikinn 5-7. Sigurður varð þar með Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Úrslit á Íslandsmótinu

Go to News Site