Fréttastofa RÚV
Velferðarráð Reykjavíkurborgar lýsir yfir áhyggjum í tengslum við frumvarp barna- og menntamálaráðherra um breytingar á lögum um barnavernd. Í umsögn sinni um frumvarpið ítrekar ráðið mikilvægi þess að vandað sé til verka í svo viðkvæmum málaflokki. Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, lagði fram frumvarp til laga um barnaverndar á föstudaginn. Velferðarráð Reykjavíkurborgar sendi velferðarnefnd Alþingis umsögn um frumvarpið samdægurs. Ráðið segir þar ámælisvert að kafli um fósturmál hafi ekki verið nægilega vel skoðaður. Þá er ekki heldur fjallað um málefni fatlaðra og seinfærra foreldra með nægilega skýrum hætti að mati ráðsins og ákvæði um börn með fjölþættar stuðningsþarfir óskýr. Umfagsmiklar breytingar sem snerti viðkvæma hópa Í umsögninni lýsir velferðaráð áhyggjum af því að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til athugasemda um frumvarpið sem feli í sér umfangsmiklar breytingar á lögum og snerti viðkvæma hópa. Ljóst sé af frumvarpinu í núverandi mynd að samráð hafi skort og fer ráðið fram á að málið verði unnið betur áður en það verður að lögum. Bent er á að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir því að úrskurðarvald sé fært frá sveitarfélögunum til ríkisins, sem kalli til að mynda á aukið samtal. Frumvarpið komi þess að auki of seint fram á núverandi þingi til þess að raunhæft sé að það nái þeirri umfjöllun sem það á skilið. Tími frá samþykki til gildistöku sé allt of knappur og leggur ráðið áherslu á nauðsyn þess að reglugerðir verði settar og taki gildi á sama tíma og lögin taka gildi.
Go to News Site