Fréttastofa RÚV
Ekið var á tvo gangandi vegfarendur, barn og fullorðinn, við söluskála Olís í Varmahlíð í dag. Báðir einstaklingar hafa verið fluttir flugleiðis á Landspítalann. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi vestra en í tilkynningu lögreglu segir að ekki séu veittar frekari upplýsingar að svo stöddu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Norðurlandi vestra vegna slyssins. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir þyrluna hafa verið kallaða út í mesta forgangi og að hún hafi tekið á loft um klukkan hálf sex í dag. Pétur Björnsson yfirlögregluþjónn segir slysið alvarlegt en kvaðst ekki hafa upplýsingar um hversu margir væru slasaðir. Lögreglunni hafi borist útkallið rétt fyrir klukkan fimm í dag og viðbragðsaðilar séu á vettvangi. Vegurinn sé ekki lokaður. Fréttin hefur verið uppfærð.
Go to News Site