Collector
Valsmenn í undanúrslitin gegn KA | Collector
Valsmenn í undanúrslitin gegn KA
Fréttastofa RÚV

Valsmenn í undanúrslitin gegn KA

Valur komst í kvöld í undanúrslit úrvalsdeildar karla í handbolta með sigri á HK í Kórnum, 32-28 . Valur var einu marki yfir í hálfleik, 13-14 og jafnræði var með liðunum framan af í seinni hálfleik. Eftir að tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik leiddu Valsmenn með tveggja til þriggja marka mun þar til undir lokin. Gunnar Róbertsson skoraði 10 mörk fyrir Val í kvöld.Rúv / Mummi Lú Valur vann fyrsta leikinn í einvígi liðanna í 8-liða úrslitunum eftir framlengingu og unnu Valsmenn einvígið því 2-0. Valur mætir KA í undanúrslitunum en KA sló út ÍBV fyrr í kvöld í háspennuleik .

Go to News Site