Fréttastofa RÚV
Flugvél Air China á flugvellinum í Peking.EPA / WU HAO Kínverska flugfélagið Air China hefur flug að nýju í dag frá Peking í Kína til Pyongyang í Norður-Kóreu en flugfélagið hefur ekki flogið þessa leið í sex ár. Samgöngur hafa verið mjög takmarkaðar milli landanna síðan 2020 þegar Covid-19 faraldurinn kom upp. Lestarsamgöngur hófust að nýju fyrr í þessum mánuði. Kína opnaði landamæri sín fyrir nokkru síðan en yfirvöld í Norður-Kóreu hafa farið hægar í sakirnar við að opna landamæri sín að nýju. Enn sem komið er veita yfirvöld í Norður-Kóreu aðeins vegabréfsáritanir til ferðamanna sem eru á leið til landsins í opinberum eða sérstökum erindagjörðum.
Go to News Site