Collector
Friðargæsluliðar urðu fyrir árás í Líbanon | Collector
Friðargæsluliðar urðu fyrir árás í Líbanon
Fréttastofa RÚV

Friðargæsluliðar urðu fyrir árás í Líbanon

Friðargæsluliðarnir eru í Friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, The United Nations Interim Force in Lebanon (UNIFIL). Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / WAEL HAMZEH Utanríkisráðuneyti Indónesíu hefur staðfest að indónesískur friðargæsluliði hafi verið drepinn í Líbanon og þrír aðrir séu særðir. Friðargæsluliðarnir eru í Friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, The United Nations Interim Force in Lebanon (UNIFIL) . Friðargæsluliðarnir urðu fyrir sprengingu nærri bænum Adchit Al Qusayr nærri landamærum Ísraels og Líbanons í gær. Ísraelski herinn hefur barist við Hezbolla-hreyfinguna á þessu svæði í tæpan mánuð. Stjórnvöld í Indónesíu fordæma harðlega árásina og kalla eftir því að hún verði rannsökuð en ekki liggur fyrir hver ber ábyrgð á árásinni.

Go to News Site