Fréttastofa RÚV
Miðflokkurinn í Kópavogi er búinn að ákveða framboðslista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Stjórn flokksins í Suðvesturkjördæmi hefur samþykkt tillögu uppstillingarnefndar í bænum. Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður flokksins, er oddviti framboðslistans. Næstu sæti skipa Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari, og Beitir Ólafsson byggingaverktaki. Miðflokkurinn bauð fram í Kópavogi í síðustu kosningum en náði ekki inn í bæjarstjórn.
Go to News Site