Fréttastofa RÚV
Sjöundu umferð Reykjavíkurskákmótsins lauk í Hörpu í gærkvöld. Athygli vekja fádæma yfirburðir íransk skákmannsins Amin Tabatabaei sem nældi sér í sinn sjöunda vinning í sjö skákum. Tabatabaei hafði hvítt gegn Frakkanum Marc’Andria Maurizzi á efsta borði og sá íranski nennti engu hálfkáki og blés til harðrar sóknar snemma tafls. Þetta eru nánast fáheyrðir yfirburðir á Reykjavíkurskákmóti og getur Tabatabaei tryggt sér sigur á mótinu í dag ef hann vinnur skákina sína í áttundu umferð. Mótinu lýkur annars á morgun þriðjudag og verður spenanndi sjá hvort það gerist í fyrsta sinn í sögu mótsins að keppandi vinni allar sínar skákir. Tabatabaei er efstur að loknum sjö umferðum og enski stórmeistarinn Matthew J Wadsworth er sá eini sem á raunhæfan möguleika. Hann er í öðru sæti, einum vinningi á eftir Tabatabaei. Guðmundur orðinn efstur Íslendinga Guðmundur Kjartansson hefur tekið forystuna hjá Íslendingum eftir sigur í Íslendingaslagnum gegn Vigni Vatnari Stefánssyni. Guðmundur Kjartansson er tæknilega í skiptu þriðja sæti en með lág oddastig. Skák Vignis og Guðmundar var eiginlega úrslitaskák um hvor Íslendingurinn gæti gert tilkall til einhverra af verðlaunasætum á mótinu. Guðmundur er þó með nokkuð verri oddastig. Áttunda umferð í dag Áttunda umferð mótsins hefst kl. 16 í dag. Þá mætast Wadsworth og Tabatabaei í nánast úrslitaskák. Ef Tabatabaei vinnur hefur hann unnið Reykjavíkurskákmótið. Mesta spennan er þó hvort að hann nái að klára Reykjavíkurskákmótið með fullu húsi, eitthvað sem hefur ekki gerst áður. Guðmundur hefur hvítt gegn norska stórmeistaranum Elham Amar. Dagur Ragnarsson mætir Alisher Suleymanov, stórmeistara frá Kasakstan. Staðan á mótinu
Go to News Site