Fréttastofa RÚV
Sigyn Blöndal, kynningarstjóri Unicef á Íslandi, segist aldrei hika þegar það er ævintýri fram undan. Hún er landsmönnum vel kunnug úr þáttagerð í sjónvarpi og útvarpi og núna um páskana býður hún landsmönnum upp á útvarpsþætti um krossfestingar á Filippseyjum. Þegar hún flutti með fjölskyldu sinni til Filippseyja fyrir nokkru síðan fékk hún nefnilega að kynnast manni sem hefur farið á krossinn 36 sinnum. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræddi við Sigyn í Segðu mér á Rás 1 um ævintýraþrána og þáttinn Krossfest sem verður á dagskrá Rásar 1 föstudaginn langa. „Ég áttaði mig á þessu eftir að ég varð fullorðin, ég þarf alltaf að vera að prófa eitthvað nýtt af því að það er svo gaman,“ segir Sigyn sem hefur flutt ótal sinnum með fjölskyldu sinni og tekið að sér ný og krefjandi verkefni þegar færi býðst. Hún fæddist á Akureyri og gekk í tvo grunnskóla þar og þegar hún var níu ára flutti hún suður með móður sinni og gekk í tvo grunnskóla þar. „Mér fannst þetta brjálæðislega spennandi. Kannski var ég bara alltaf þessi týpa, frá upphafi, sem var ógeðslega til í að pakka í tösku, hitta nýtt fólk og upplifa ævintýri.“ Forréttindi að fá val Árið 2004 flutti Sigyn aftur til Akureyrar ásamt Agli, eiginmanni sínum. Þá voru þau nýútskrifuð úr menntaskóla og voru að velta fyrir sér framtíðinni. Hann fór í háskólanám en hún ákvað að stofna fyrirtæki, opna dansskóla og vinna með Leikfélagi Akureyrar. Þá var hún einnig ólétt af eldri syni sínum. Seinna ákvað fjölskyldan að flytja til Bretlands þegar Sigyn fór í nám, þá voru börnin tveggja og sjö ára. „Það var rosalegur skóli, við lærðum helling.“ Þetta var algjört ævintýri og þegar tilboðið kom til Egils að taka við tímabundnu verkefni á Filippseyjum fannst þeim lítið annað koma til greina en að slá til. Það væru forréttindi að fá slíkt val. Skemmtilegt að fá að kynnast landi og þjóð Sigyn vann frá Filippseyjum en átta tíma mismunur gerði henni stundum erfitt fyrir. Þá hófst vinnudagur hennar klukkan fjögur um eftirmiðdaginn og lauk um miðnætti. „En með góðu skipulagi var þetta hægt.“ Hún minnkaði þó aðeins við sig í vinnu því hún hafði þörf fyrir því að miðla reynslu sinni áfram. Hún fór því að senda inn pistla í Morgunvaktina á Rás 1 og gerði útvarpsseríu um karíókí sem hét My way morðin . „Það er svo ótrúlega gaman þegar maður kemur á stað eins og Filippseyjar. Ég viðurkenni að ég vissi ekkert um Filippseyjar nema bara þá sturluðu staðreynd að það eru einhverjir sem láta krossfesta sig þar um páskana. En svo er bara svo margt menningarlegt og stórundarlegt. Það var skemmtilegt að fá tíma til að kafa aðeins í þetta og kynnast landi og þjóð betur.“ Getum ekki hlustað á þessa frétt ár eftir ár án þess að spyrja hvers vegna Hún ákvað að nýta tækifærið á meðan hún var úti og kynna sér þessar krossfestingar betur. „Ég verð að koma mér í samband við einhvern sem veit eitthvað um þetta,“ hugsaði hún með sér. Hún ræddi við prófessor sem sagði henni ýmislegt en síðan er samband Íslendinga svo sterkt að hún komst í kynni við mann sem var giftur filippseyskri blaðakonu sem þau hittu í hádegismat. „Ef þú hefur áhuga á þessu þá er vinkona mín með kontakt á manninn sem er að fara á krossinn í 36. sinn.“ Sigyn ræddi við Ruben Enaje í gegnum fjarskiptaforrit en þegar hann bauð henni að koma í heimsókn þegar æfing færi fram hikaði hún ekki. „Ég fór heim til hans og var viðstödd þessa æfingu. Þetta var stórmerkilegt. Svo viku seinna fór hann á krossinn á föstudaginn langa og þá mætti ég aftur út í sveit og sá það. Það var líka bara stórmerkilegt.“ Enaje er einn af þeim fáu sem lætur negla sig við krossinn. „Það er samt smá pallur, hann hangir ekki alveg bara á handleggjunum. Þetta var ótrúleg lífsreynsla og ég er svo glöð að ég skyldi kýla á þetta,“ segir Sigyn því margir höfðu sínar efasemdir um að hún skyldi fara í heimsókn til þessa manns. „Þetta er bara of forvitnilegt. Við verðum að fá einhver svör. Við getum ekki bara hlustað á þessa frétt ár eftir ár að fólk á Filippseyjum láti krossfesta sig án þess að spyrja af hverju.“ Setur sjálfan sig inn í heimsmálin Í þættinum, sem heitir Krossfest, segir Enaje frá því hvers vegna hann fari á krossinn en Sigyn viðurkennir þó að hún eigi bágt með að skilja ástæðuna. „Maður á svo rosalega erfitt með að setja sig í þessar aðstæður.“ „Ég myndi seint teljast trúuð manneskja en mér finnst ótrúlega magnað þegar fólk fer í gegnum þetta ferli, þennan gríðarlega sársauka. Þú ert að færa fórn og ert að biðja um eitthvað í staðinn. Í fyrra bað hann um frið á Gaza. Þú ert að setja sjálfan þig inn í einhverja heimsmynd og heimsmál sem þú hefur í rauninni ekkert með að gera en hann hugsar þetta allt öðruvísi. Trúin kemur svo sterk þar inn.“ „Þetta er svo áhugavert fyrir okkur trúleysingjana að reyna að skilja.“ „Maður á svo rosalega erfitt með að setja sig í þessar aðstæður,“ segir Sigyn Blöndal. Þegar hún bjó á Filippseyjum kynntist hún manni sem hefur látið krossfesta sig 36 sinnum. Hún gerði þátt um athæfið sem verður á dagskrá Rásar 1 um páskana. Rætt var við Sigyn Blöndal í Segðu mér á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.
Go to News Site