COLLECTOR
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur berjast um forystuna | Collector
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur berjast um forystuna
Fréttastofa RÚV

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur berjast um forystuna

Ekki mælist marktækur munur á fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg en í Hafnarfirði mælist Samfylkingin stærst allra flokka samkvæmt nýjum skoðanakönnunum Maskínu fyrir DV sem birtar voru um helgina. Samfylkingin mælist fjórða mánuðinn í röð stærsti flokkurinn í borgarstjórn í könnunum Maskínu. Munurinn á henni og Sjálfstæðisflokknum er þó aðeins hálft prósentustig. 21,7 prósent segjast myndu kjósa Samfylkinguna en 21,2 prósent Sjálfstæðisflokkinn. Báðir flokkar hafa tapað fylgi að undanförnu. Samfylkingin mældist með 28,1 prósent í september og Sjálfstæðisflokkurinn með 31,0 prósent í nóvember. Viðreisn og Miðflokkurinn mælast með svipað fylgi og í síðustu könnunum en fylgi Viðreisnar hefur þó minnkað um tvö prósentustig á tveimur mánuðum. Vinstrið sækir í sig veðrið og eykur fylgið úr 9,1 prósenti í 12,4 prósent. Samfylkingin nýtur mestra vinsælda flokka í Hafnarfirði samkvæmt nýrri könnun Maskínu þar. Hún fengi 24,5 prósent en Sjálfstæðisflokkurinn 21,4 prósent. Þetta væri mikil breyting frá síðustu kosningum þegar Sjálfstæðisflokkurinn fékk 31,7 prósent atkvæða og Samfylkingin 29,0 prósent. Viðreisn tvöfaldar fylgi sitt samkvæmt könnuninni. 18,6 prósent segjast myndu kjósa hana nú en flokkurinn fékk 9,1 prósent í kosningum fyrir fjórum árum. Miðflokkurinn myndi þrefalda fylgi sitt frá síðustu kosningum samkvæmt nýju könnuninni og Viðreisn tapa nokkru fylgi. Í könnuninni var gefinn valkosturinn Vinstri græn en skömmu eftir að hún kláraðist var tilkynnt um sameiginlegt framboð Vors til Vinstri og Vinstri grænna í Hafnarfirði undir heitinu Vinstrið Hafnarfirði. Maskína gerði báðar kannanirnar 12. til 19. mars. 1.442 tóku afstöðu til flokks í Reykjavík og 649 í Hafnarfirði.

Go to News Site