Fréttastofa RÚV
Þremur listaverkum eftir heimsþekkta listamálara var stolið frá ítalska listasafninu Magnani Rocca-safninu, nærri borginni Parma, í síðustu viku. Verkin þrjú eru Fiskur eftir Auguste Renoir, Kyrralífsmynd með kirsuberjum eftir Paul Cezanne og Ambátt á stéttinni eftir Henri Matisse. Verkin eru metin á níu milljónir evra samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC . Það jafngildir tæpum 1,3 milljörðum íslenskra króna. Þar af er verk Auguste Renoir Fiskur eitt og sér metið á 6 milljónir evra eða um 860 milljónir íslenskra króna. Renoir var einn helsti impressjónistamálarinn og Fiskinn málaði hann árið 1917. Verkið eftir Cezanne var málað árið 1890 og Matisse málaði sitt verk árið 1922. Svo virðist sem þjófnaðurinn hafi verið þaulskipulagt en það tók þjófana fjóra innan við þrjár mínútur að stela listaverkunum. Ekki var greint frá þjófnaðinum fyrr en í gær. Lögreglan fer með rannsókn málsins og vinnur nú að því að fara yfir gögn úr öryggismyndavélum á safninu og í nágrenni þess. Þetta er einn stærsti listaverkaþjófnaður frá safni í Evrópu. Í október síðastliðnum brutust þjófar inn á Louvre-safnið í París um hábjartan dag og rændu skartgripum að verðmæti 102 milljónum dollara á innan við átta mínútum.
Go to News Site