Collector
Neitar að hafa orðið félaga sínum að bana | Collector
Neitar að hafa orðið félaga sínum að bana
Fréttastofa RÚV

Neitar að hafa orðið félaga sínum að bana

Grískur karlmaður neitar að hafa banað félaga sínum á Kársnesi í Kópavogi í nóvember á síðasta ári. Þingfesting fór fram í dag í málinu í dag í Héraðsdómi Reykjaness. Þá hafnaði hann einnig framlögðum bótakröfum í málinu. Málið verður næst tekið fyrir þann 16. apríl. Til stendur að aðalmeðferð í málinu hefjist 6. maí og henni verði framhaldið föstudaginn 8. maí. Maðurinn var ekki viðstaddur í dómssal en tjáði sig í gegnum fjarfundarbúnað með aðstoð túlkanda. Málið vakti athygli á sínum tíma og virtist lögregla í fyrstu telja að hinn látni hefði sjálfur veitt sér þá áverka sem drógu hann til dauða. Félagi hins látna var síðar handtekinn grunaður um verknaðinn. Krufning bendir til þess að dánaratvik hafi verið manndráp. Við réttarlæknisskoðun kom í ljós að hinn ákærði var með skurðáverka á höndum en hann bar fyrir sig að hann hefði hlotið þá þegar barn hans var að meðhöndla hníf og sagðist einnig hafa verið klóraður af ketti. Lífsýni á skafti og blaði hnífs, sem fannst á heimili hins látna, reyndust vera úr báðum mönnum. Inntur eftir útskýringum á því sagðist hinn ákærði hafa snert alla hnífa hins látna. Hann hafi skorið epli og kókaínpakkningar í heimsókninni. Maðurinn var á heimili hins látna kvöldið sem hann lést og segir þá hafa neytt kókaíns og spilað fjárhættuspil. Hann neitaði því aftur á móti að hafa veitt manninum áverka. Hann hafi verið á heimilinu í eina til tvær klukkustundir og svo farið heim og þar næst keyrt að sundlaug og setið fyrir utan úti í bíl og spilað póker.

Go to News Site