Fréttastofa RÚV
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa augastað á íranskri olíu og segir að Bandaríkjamenn myndu eiga auðvelt með að taka yfir Kharg-eyju, helstu útflutningsstöð Írana fyrir olíu. Hann líkti mögulegri yfirtöku á Kharg við aðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela. „Í fullri hreinskilni vil ég helst taka olíuna í Íran,“ sagði Trump við Financial Times í gær. „Kannski tökum við Kharg-eyju. Kannski ekki. Við höfum ótal möguleika.“ Trump sagði það hins vegar þýða viðveru Bandaríkjanna þar til langs tíma en að yfirtaka eyjarinnar yrði auðveld. „Ég held að þeir séu ekki með neinar varnir. Við gætum tekið hana mjög auðveldlega.“ Um 3.500 bandarískir hermenn komu til Mið-Austurlanda á föstudag og um 2.200 til viðbótar eru þegar á leiðinni. Til stendur að senda alls um 10.000 hermenn . Íranar saka Bandaríkjamenn um að halda umræðu um friðarumleitanir á lofti á opinberum vettvangi meðan þeir skipuleggja landhernað. Pakistanar eru milligöngumenn í óbeinum viðræðum milli Írana og Bandaríkjamanna. Donald Trump sagði viðræður við Írana ganga vel. Hann hefur gefið þeim frest til 6. apríl til að opna að fullu fyrir flutning um Hormús-sund. „Samningur gæti náðst nokkuð fljótt,“ sagði Trump.
Go to News Site