Fréttastofa RÚV
Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu félags fanga er í framboði í borgarstjórnarkosningunum í vor. Svo virðist sem Guðmundur hafi stofnað til nýs framboðs, en hann vildi ekki veita viðtal þegar eftir því var leitað. Guðmundur Ingi var formaður Rósarinnar, sem er landsfélag jafnaðarfólks og aðildarfélag Samfylkingarinnar. Hann tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í borginni í janúar, lenti í 7. sæti en fékk síðan ekki sæti á lista. Talaði við ýmsa Í kjölfarið sleit Rósin samstarfi við fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík og hóf viðræður við Vinstrið, framboð undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, þeim lauk án árangurs og ákveðið var að Rósin styddi Samfylkinguna. Síðan var Guðmundur Ingi orðaður við framboð Flokks fólksins í borginni. Samkvæmt heimildum fréttastofu verður framboð Guðmundar Inga kynnt annaðhvort á morgun eða miðvikudag. Á vefsíðunni gudmunduringi.is er niðurtalning sem lýkur á hádegi á miðvikudaginn undir fyrirsögninni Stór dagur í lífi mínu - en samkvæmt heimildum fréttastofu er tímasetningin til endurskoðunar. Reyndar var í fyrstu útgáfu síðunnar vísað á hádegið í dag, en því hefur nú verið breytt. Á vefsíðunni eru helstu stefnumál Guðmundar Inga kynnt. Tíundi listinn Með tilkomu þessa framboðs hafa tíu framboðslistar verið kynntir til sögunnar í Reykjavík en vel gæti bæst við, í síðustu borgarstjórnarkosningum gátu Reykvíkingar valið á milli ellefu framboða. Flokkar og framboð hafa frest til 10. apríl til að skila inn framboðslistum sínum og meðmælendalistum.
Go to News Site