Fréttastofa RÚV
Rússneskt olíuskip er á leið til Kúbu með um 730 þúsund tunnur af olíu og ætti að óbreyttu að koma til hafnar á mánudagskvöld. Fréttamenn spurðu Donald Trump forseta Bandaríkjanna út í afstöðu hans til þessa þegar hann flaug frá Flórída til Washington í gær. Trump sagðist ekkert hafa á móti því að Rússar flyttu olíu til Kúbu. Stjórnin þar væri spillt og íbúarnir þyrftu á olíunni að halda. „Kúba er búin að vera. Þeir eru með slæmt stjórnkerfi, mjög slæma og spillta leiðtoga og hvort þeir fá olíuskip eða ekki skiptir ekki máli. Ég vil frekar leyfa skipinu að sigla til Kúbu, hvort sem það eru Rússar eða aðrir, því fólkið þarfnast hita og kælingar og hvaðeina,“ sagði Bandaríkjaforseti.
Go to News Site