Collector
Stórfelldur listaverkaþjófnaður á Ítalíu | Collector
Stórfelldur listaverkaþjófnaður á Ítalíu
Fréttastofa RÚV

Stórfelldur listaverkaþjófnaður á Ítalíu

Þremur listaverkum eftir heimsþekkta listamálara var stolið af ítalska listasafninu Magnani Rocca, nærri borginni Parma, í síðustu viku. Verkin þrjú eru Fiskur eftir Pierre-Auguste Renoir, Kyrralífsmynd með kirsuberjum eftir Paul Cézanne og Ambátt á stéttinni eftir Henri Matisse. Verkin eru metin á níu milljónir evra samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC . Það jafngildir tæpum 1,3 milljörðum íslenskra króna. Þar af er verkið Fiskur eitt og sér metið á sex milljónir evra eða um 860 milljónir íslenskra króna. Renoir var einn helsti impressjónistamálarinn og Fiskinn málaði hann árið 1917. Verkið eftir Cézanne var málað 1890 og Matisse málaði sitt verk 1922. Svo virðist sem þjófnaðurinn hafi verið þaulskipulagður og það tók fjóra þjófa innan við þrjár mínútur að stela listaverkunum. Ekki var greint frá þjófnaðinum fyrr en í gær. Lögreglan fer með rannsókn málsins og fer nú yfir gögn úr öryggismyndavélum á safninu og í nágrenni þess. Þetta er einn stærsti þjófnaður listaverka af safni í Evrópu. Í október brutust þjófar inn á Louvre-safnið í París um hábjartan dag og rændu skartgripum að verðmæti 102 milljónir dollara á innan við átta mínútum.

Go to News Site