Collector
Þriggja bíla árekstur í hálku á Holtavörðuheiði | Collector
Þriggja bíla árekstur í hálku á Holtavörðuheiði
Fréttastofa RÚV

Þriggja bíla árekstur í hálku á Holtavörðuheiði

Áreksturinn varð á Holtavörðuheiði vegna hálku.RÚV / Kristófer Óli Birkisson Þrír bílar rákust saman á Holtavörðuheiði í kvöld. Meiðsl á fólki voru minni háttar að sögn lögreglunnar á Norðurlandi vestra en ekki liggur fyrir hversu margir leituðu sér aðhlynningar. Áreksturinn varð með þeim hætti að einn bíll hafði farið út af í hálku, annar var að draga hann aftur upp á veginn og þá kom bíll sem lenti í árekstri við þessa tvo bíla. Búið er að flytja fólk og bíla af vettvangi. Fljúgandi hálka og mjög slæm akstursskilyrði eru á Holtavörðuheiði samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Vegagerðarinnar; umferdin.is

Go to News Site